fjármögnun á tækjakosti til bráðagreiningar á heilsugæslunni á Egilsstöðum.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa þingsályktunartillögu og vil lýsa því í byrjun yfir að ég er samþykkur henni þó að ég sé ekki einn af flutningsmönnum hennar, enda var ég ekki staddur á þinginu þegar hún var fyrst lögð fram. En hvað um það. Hv. þingmaður fór hér vel yfir þær aðstæður sem fólk býr við víða hér á landi þó að hér hafi sérstaklega verið talað um Austurland sem er kannski hvað fjærst og erfitt yfir að fara. En þessar aðstæður eru víða og því mikilvægt að horfa til þess grundvallarréttar sem við höfum öll til að búa við bestu mögulegu heilbrigðisþjónustu óháð staðsetningu, óháð því hvar við búum. Þá skiptir einmitt tækjakosturinn miklu máli og að við tryggjum það að sá tækjakostur sé til staðar á hverjum stað sem þarf. Núna á tækniöld, ef má segja svo, er nýsköpunin og þróunin í fjarlækningatækjum, greiningartækjum og öðru orðin svo mikil og því öflugri sem þessi tæki eru því betri eru aðstæður því að hinn vandinn sem er líka uppi, það eru ekki bara fjarlægðirnar landfræðilega, er mönnunarvandi og því betri sem allir innviðir eru og umgjörðin þá treysta fleiri sér til að vinna við þessar aðstæður og fara út á land og vinna. Þá er líka kannski hægt að bregðast við með sérhæfðri aðstoð.
Í þessu ljósi öllu saman, út af þessari þróun og þessum aðstæðum, lagði þáverandi hv. velferðarnefnd fram þingsályktunartillögu um mótun stefnu um bráðaþjónustu utan spítala árið 2019 og hún var samþykkt hér í þinginu 7. maí 2019. Þar var heilbrigðisráðherra falið að móta þessa stefnu um bráðaþjónustu utan spítala. Þar var hugmyndin að það yrði gerð miðstöð sem myndi vera stuðningur við bráðaþjónustu hringinn í kringum landið og hvernig mætti gera þetta sem best. Núverandi hæstv. heilbrigðisráðherra hefur sett á starfshóp sem mun skila skýrslu um þetta sem ég ber miklar væntingar til að fari að líta dagsins ljós og er þá í þessum anda sem sú þingsályktunartillaga sem hér er lögð fram og við erum að ræða núna. Inn í þetta koma líka innviðir eins og sjúkraflug, sjúkraþyrlur, sjúkraflutningar almennt og sérhæfing heilbrigðisstarfsfólks eftir aðstæðum og hvernig við samnýtum þetta allt saman. Allt hjálpast þetta að við að stytta viðbragðstímann, tryggja mönnunina, að fleiri treysti sér til að fara í þetta, og að bæta árangur af því að tíminn skiptir gríðarlega miklu máli. Því vildi ég bara koma hér upp og taka undir þær tillögur sem þessi þingsályktunartillaga boðar og minna á þá þingsályktunartillögu sem Alþingi samþykkti 7. maí 2019. Það er mjög mikilvægt að fá þessa bráðaþjónustustefnu fram sem fyrst og einhverjar aðgerðir í því til að við tryggjum sem bestu heilbrigðisþjónustu um allt land.