153. löggjafarþing — 75. fundur,  8. mars 2023.

aðgerðaáætlun gegn hatursorðræðu fyrir árin 2023 - 2026.

795. mál
[16:51]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Nei, ég fellst ekki á forsendur athugasemdar hv. þingmanns um að stjórnarmeirihlutinn hafi gengið hér fram með hatursfullum hætti. Það geri ég ekki. Tillagan sem ég er hér að mæla fyrir talar hins vegar fyrir sig sjálf. Hún snýst um þær aðgerðir sem ég sem forsætisráðherra er að leggja til til þess að við spornum gegn hatursorðræðu á öllum sviðum samfélagsins. Eins og kom fram í fyrra andsvari við hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur þá tel ég að það væri þarft verkefni fyrir þingið að fara líka á dýptina í þessum málum og horfa einmitt á skilgreiningarnar, fræðast og eiga samtal um þessi mál. Það væri mjög þarft verkefni og það er það sem verið er að leggja til. Á því byggir þessi vinna, sem ég tel mjög vandaða, breiða og á góðum grunni, og þannig held ég að við eigum að nálgast þetta mál.