157. löggjafarþing — 78. fundur,  4. mars 2026.

Störf þingsins.

[15:25]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Í gær sendi ég formlega fyrirspurn til hæstv. heilbrigðisráðherra um hversu lengi ungmenni sem glíma við geð- og fíknivanda eigi að bíða. Um síðustu helgi var áhrifamikil umfjöllun í fjölmiðlum um Gauta, eitt þeirra ungmenna sem hafa lengi háð slíka baráttu. Við vitum að saga hans er saga margra ungmenna og fjölskyldna þeirra sem hafa lengi barist við kerfið, saga ungmenna sem rekur af leið vegna þess að heildrænar meðferðir skortir. Allt of oft endar sagan á versta veg eins og kertafleytingarnar á Tjörninni í janúar síðastliðnum minntu okkur harkalega á.

Þessi vandi, virðulegi forseti, fer ekki í manngreinarálit. Mörg ungmenni koma úr stuðningsríku umhverfi, líkt og Gauti, þvert á það sem margir halda og þessi vandi snertir flestar fjölskyldur á Íslandi með einum eða öðrum hætti. Ég fullyrði að ef það væri um annars konar veikindi að ræða þá værum við að tala um allt önnur viðbrögð í okkar heilbrigðiskerfi. Gauti og fjölskylda hans stíga fram í þeirri von að stjórnvöld hlusti og bregðist við og það er eðlileg krafa.

Í aðdraganda síðustu kosninga skorti einmitt ekki loforð ríkisstjórnarflokkanna þegar kom að börnum og ungmennum sem glíma við slíkan vanda. Fyrirspurn mín til hæstv. ráðherra er því eftirfarandi: Hvenær verður boðið upp á samþætta meðferð fyrir ungmenni sem glíma bæði við geð- og fíknivanda? Hér er sömuleiðis átt við úrræði sem teygja sig yfir 18 ára aldurinn. Verður boðið upp á fjármagnað aðgengi að erlendum úrræðum á meðan það er verið að byggja upp þessa nauðsynlegu þjónustu hér á landi? Og að lokum: Í fjárlögum yfirstandandi árs var fjármagnið aukið töluvert en samt er nánast ókleift að átta sig á því í hvað fjármunirnir eiga að fara og hver væntur árangur á að vera, hvernig úrræði (Forseti hringir.) á að opna o.s.frv. Skýrleika í framkvæmd og eftirfylgni virðist skorta. Að lokum, virðulegi forseti, spyr ég hæstv. ráðherra hver sé tímalína aðgerða hér í heild, enda þolir þessi málaflokkur enga bið. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)