151. löggjafarþing — 79. fundur,  15. apr. 2021.

trúnaður um skýrslu.

[15:00]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég held að það sé fullt tilefni til að ræða trúnað í aðeins víðara samhengi hér á Alþingi. Ekki er langt síðan hv. þm. Jón Þór Ólafsson var sakaður um að brjóta trúnað þegar hann lýsti málsmeðferð nefndar hér á þingi. Mér finnst mjög skrýtið að hlusta á stjórnarmeirihlutann kvarta hvað hæst þegar „brotinn er trúnaður“ gagnvart einhverju sem varðar þeirra tilteknu störf. Það er ekki eins og hér hafi lekið persónugögn eða hernaðarupplýsingar eða áætlanir um stórfelldar njósnir yfirvalda gagnvart borgurum, eins og gerðist t.d. í tilfelli Edwards Snowdens. Það er ekki eins og þetta sé þannig. Þetta er skýrsla sem verður opinber hvort sem er, sem varð opinber fyrr en þingmenn hefðu viljað. Ég skil þetta alveg, en mér finnst að sama skapi stórmerkilegt að meiri hlutanum skuli finnast mikilvægt að hafa trúnað þegar það er engin þörf á því. Þetta er fyrirkomulag sem komið var á í sátt og samlyndi og allt í góðu með það. En ég tel fulla ástæðu til að endurskoða það þá frekar en að koma hér í pontu og snúa út úr fyrir öðrum þingmönnum og halda því fram að hér sé farið með trúnað eftir geðþótta.

Virðulegi forseti. Þetta er gegnsæ stofnun og á bara að vera eins gegnsæ og hún mögulega getur. Þetta er ekkert flóknara en það.