Varamenn taka þingsæti.
Föstudaginn 10. mars barst bréf frá formanni þingflokks Framsóknarflokksins um að Jóhann Friðrik Friðriksson, 5. þm. Suðurk., verði fjarverandi á næstunni. Þann dag tók því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista flokksins í kjördæminu, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir.
Einnig hafa borist bréf frá formanni þingflokks Pírata um að Gísli Rafn Ólafsson, 13. þm. Suðvest., geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista flokksins í Suðurk., Eva Sjöfn Helgadóttir.
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Eva Sjöfn Helgadóttir hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðnar velkomnar til starfa að nýju.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Flokks fólksins um að Eyjólfur Ármannsson, 6. þm. Norðvest., muni ekki geta sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 4. varamaður á lista flokksins í kjördæminu, Sigurjón Þórðarson, en varamenn ofar á listanum hafa boðað forföll.
Landskjörstjórn hefur gefið út tilkynningu á grundveli 1. mgr. 113. gr. kosningalaga til Sigurjóns Þórðarsonar. Jafnframt hefur stjórnskipunar og eftirlitsnefnd fundað til þess að fjalla um kosningu og kjörgengi hans.