Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 79. fundur,  13. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[17:44]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Birgir Þórarinsson) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Ákvæðið er alveg skýrt í lögunum og það er ekki verið að blekkja einn eða neinn með þessu ákvæði. 30 dagar er talinn hæfilegur tími fyrir einstakling sem fellur ekki undir verndarkerfið, fær ekki vernd á Íslandi til að yfirgefa landið. (Gripið fram í.) Hv. þingmaður spyr að því hvort það sem ráðherra segir hér, að viðkomandi eigi þá kost á því að halda áfram í kerfinu — ég veit ekki hvernig hæstv. ráðherra orðaði þetta en það er rétt að ef útlendingur lendir í vanda þá eru ákvæði í sveitarstjórnarlögum sem gera það að verkum að viðkomandi getur leitað til sveitarfélagsins og beðið um ákveðna aðstoð. Það eru engar blekkingar í þeim efnum. Ákvæðið er skýrt, hv. þingmaður. Þessi þjónusta fellur niður eftir 30 daga og það eru engar blekkingar í því. En eins og ég segi þá veit ég ekki nákvæmlega hvað hæstv. ráðherra sagði hér en ef hann hefur sagt það að allir ættu áfram rétt á þjónustu eftir þessa 30 daga (Forseti hringir.) þá stemmir það ekki. Ákvæðið í lögunum er alveg skýrt.