útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir síðara andsvar. Við getum þó a.m.k. verið sammála um að það frumvarp sem nú liggur fyrir í þinginu er raunverulega ekki að taka á vandamálinu. Ég er algerlega sammála því sem margir hér hafa verið að tala um, það hefði ekki kostað neitt að fá betur úr því skorið hvort raunverulega væri á einhverjum tímapunkti verið að skáka mannréttindum og koma illa fram við fólk. Mér finnst það bara algerlega sjálfsagður hlutur.
Það breytir ekki þeirri staðreynd að reglur eru reglur. Og þegar verið er að tala um að við þurfum að fylgja okkar alþjóðlegu skuldbindingum og öðru slíku þá erum við líka með sérreglu sem ekkert annað Norðurlandanna er með. Það er sérregla sem gerir í rauninni stöðu hælisleitenda að stöðu flóttamanns og þeir fá þá um leið öll þau réttindi sem því fylgir.
Ef við værum nú kannski pínulítið ríkari þá fyndist mér ekkert athugavert við þetta, ekki neitt, akkúrat ekki neitt. Þá mættu allir koma hér sem vildu. Við eigum nóg landsvæði, við eigum nóg af öllu til að byggja milljónasamfélag. En við yrðum þá líka að vera búin að undirbúa það mun betur og geta tekið á móti fólkinu með reisn þannig að það væri ekki að koma hingað nánast í rjúkandi rústir á margan hátt, þó svo að það hljóti í öllu falli að koma í betri aðstæður en það var að flýja.