útlendingar.
Herra forseti. Það er nú bara augljóst; ef við skoðum fjölda þeirra sem koma frá þessu ágæta ríki, Venesúela, til Íslands og berum það saman við ríki hér í Evrópu þá er greinilegt að það er greiðari leið hingað en annað. Við þurfum ekkert að deila um það. Tölur sýna það bara. Ég er að segja að við verðum auðvitað að gæta að okkur í þessum málum. Við erum lítið land og þurfum auðvitað að vanda okkur, vanda umræðuna og ekki gera hvert öðru upp einhverjar illar hvatir þegar við viljum halda vel utan um íslenskt samfélag sem er verðmætt og það skiptir miklu máli að halda vel utan um íslenska þjóðmenningu. Við erum örríki og við getum ekki bara látið eins og við getum tekið á móti öllum heiminum. En auðvitað eigum við að gera okkar og taka þá vel á móti þeim sem þurfa á því að halda og við höfum ráð á. En við sjáum það bara að húsnæði er uppurið, það er koma gríðarlegur kostnaður og við eyðum ekki sömu krónunni tvisvar, hv. þingmaður.