Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 79. fundur, 13. mars 2023.
greinargerð um sölu Lindarhvols.
Eðli málsins samkvæmt taka úrskurðir úrskurðarnefndar upplýsingamála ekki til starfsemi þingsins. Það er utan við verksvið þeirrar nefndar að fjalla um málefni sem eru til meðferðar hjá þinginu. Hins vegar lítur forseti svo á að þau lögfræðilegu sjónarmið sem koma fram í a.m.k. þremur úrskurðum úrskurðarnefndar um upplýsingamál frá 2021 hafi verulegt vægi við lögskýringu hvað álitamál varðar sem er sambærilegt, þ.e. um stöðu þess skjals sem hér er til umræðu. (BLG: Bannar það birtingu?)