150. löggjafarþing — 8. fundur,  23. sept. 2019.

stofnun embættis tæknistjóra ríkisins.

15. mál
[19:34]
Horfa

Njörður Sigurðsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og ég sé að við erum um margt sammála. Eins og fram hefur komið og kemur fram í greinargerðinni líka halda rafræn gagnakerfi ríkisins utan um upplýsingar sem varða í raun og veru öll verkefni sem ríkið sinnir. Það verða engin gögn til nema á rafrænu formi í dag og þannig er það í stjórnsýslunni. Í gagnakerfunum eru upplýsingar um nánast allt sem viðkemur rekstri og þjónustu ríkisins. Það er því gífurlega mikilvægt að hugað sé vel að rekstri og uppbyggingu slíkra kerfa þegar kemur að skilvirkni, upplýsingaöryggi og svo langtímavarðveislu eins og ég nefndi áðan. Ég vona að þetta mál fái góða og ítarlega umfjöllun í nefndinni og verði vonandi að veruleika og til þess að bæta þennan málaflokk.