153. löggjafarþing — 8. fundur,  22. sept. 2022.

ummæli innviðaráðherra um skattamál.

[11:00]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég ætla nú ekki að fara að deila við hv. þingmann um það hvort sá sem hér stendur sé vanur að standa við orð sín og láta hendur standa fram úr ermum. Ég held að verkin standi alveg skýrt fyrir það þannig að ég ætla ekki að svara því. Ég er sammála hv. þingmanni að það er mikilvægt fyrir okkur að halda áfram að bæta samfélagið og það er mikilvægt að gera það sem við gerðum til að mynda í vor, að stíga inn í og aðstoða þá sem minnst höfðu í gegnum hlutina. Það skiptir líka máli að við förum ekki að ganga hér um með einhverjar sveðjur heldur hjálpum til, styðjum við Seðlabankann. Og hvað er að gerast varðandi verðbólguna, ef ég mætti spyrja hv. þingmann, sem er með sérþekkingu á þessu sviði? Er það kannski þannig að þær aðgerðir sem Seðlabankinn og ríkisvaldið standa fyrir á húsnæðismarkaði eru að hafa áhrif? Getur verið að við séum á réttri leið án þess að vera alltaf í einhverjum stórkostlegum sveiflum heldur með því að finna réttu stilliskrúfurnar? Ég skal vera með hv. þingmanni í því að bæta samfélagið (Forseti hringir.) og bæta kjör þeirra sem þurfa á því að halda því að við erum án efa sammála um það.