námsgögn.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni um að ríkisstjórn á að sjálfsögðu að starfa fram á síðasta dag, fram á síðustu mínútu, þangað til einhverjir koma hér og segjast vera orðnir nýir ráðherrar, nýr stjórnarmeirihluti o.s.frv. Það er að sjálfsögðu alltaf takmörk fyrir því hvað er hægt að gera eftir að stjórn fellur og ýmislegt þess háttar en ég vona að slík stjórn myndi bara starfa af heilum hug. Varðandi það að svona hlutir komi fram á kosningavetri þá vil ég bara segja að ég hefði viljað sjá báðar þessar breytingar miklu fyrr.