150. löggjafarþing — 8. fundur,  23. sept. 2019.

gagnkrafa ríkislögmanns í Guðmundar- og Geirfinnsmáli.

[15:03]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Það er óheppilegt að hæstv. forsætisráðherra skuli ekki vera hér í dag og ekki hæstv. ráðherrar fjármála og dómsmála. Ég ræði því við hæstv. samgönguráðherra sem er einn af oddvitum ríkisstjórnarinnar. Mörgum brá í brún þegar heyrðist af gagnkröfu ríkislögmanns í bótamáli Guðjóns Skarphéðinssonar, eins af þeim sem sátu í fangelsi vegna Guðmundar- og Geirfinnsmála. Eins og alþjóð veit var hann, ásamt öðrum sem dæmdir höfðu verið, sýknaður af Hæstarétti Íslands af þeim glæpum sem þeir höfðu liðið gríðarlegar þjáningar fyrir, bæði í hræðilega langri einangrun í varðhaldi og með afplánun áralangra dóma. Flestir muna líka eftir því að hæstv. forsætisráðherra bað þá síðan afsökunar á ranglætinu fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og forsætisráðherra skipaði í framhaldinu sáttanefnd sem hafði þó svo bundnar hendur hvað varðaði fjármuni að engin sátt náðist milli aðila. Guðjón stefndi því ríkinu til greiðslu skaðabóta.

Sama ríki og hafði krafist þess að þeir yrðu sýknaðir við endurupptöku málsins, hafði viðurkennt bótarétt og beðið Guðjón afsökunar neitar nú ekki aðeins bótaskyldu heldur leggur í þokkabót til að Guðjón greiði málskostnað. Ríkislögmaður er starfsmaður framkvæmdarvaldsins og heyrir beint undir Stjórnarráðið. Ráðherrar fara með fyrirsvar í dómsmálum gegn ríkinu þó að ríkislögmaður annist rekstur slíkra mála. Veit hæstv. ráðherra hvaða ráðherra eða ráðherrum var stefnt sem fyrirsvarsmanni í þessu máli? Var ráðherra ljóst hver málsvörn ríkislögmanns yrði fyrir hönd ríkisstjórnarinnar áður en greinargerðin var lögð fram og var efni hennar rætt í ríkisstjórn? Er ráðherra sáttur við slíka málsvörn eða hyggst hann leggja það til á ríkisstjórnarfundi að leitað verði leiða til að útkljá málið á annan hátt? Eða finnst honum kannski ásættanlegt að þeir sem fara með opinbert vald beiti öllum brögðum til þess að fá sýknu í stað þess að gæta virðingar, mannúðar og sanngirni gagnvart borgurum landsins?