157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

[16:00]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Við sáum breytingar á lánshæfismati ríkissjóðs núna fyrir helgi. Þetta er reyndar önnur tilkynningin um slíkt. Hvers vegna er það? Vegna þess að það er bjart fram undan í ríkisfjármálum? Hvers vegna er það? Vegna þess að þessi ríkisstjórn er að fara að skila fjármálaáætlun sem sýnir jákvæða afkomu í fyrsta skipti í tíu ár, út kjörtímabilið, út tímabil þessarar ríkisstjórnar. Við höfum hoggið á raforkuhnútinn, við erum búin að leggja fram húsnæðispakka. Það er nú þegar búið að setja fram áætlanir og opna fleiri hjúkrunarrými en síðasta ríkisstjórn gerði í sjö ár. Þingsályktunartillagan um þessa þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem hlustað verður á þjóðina var samþykkt á hundraðasta — einn núll núll — fundi ríkisstjórnarinnar þar sem m.a. var líka samþykkt stofnun innviðafélag — sem síðasta ríkisstjórn fjallaði um í hversu langan tíma? Mögulega hátt í tíu ár. Það er verið að gera ýmislegt annað. Við getum spurt þjóðina og líka sinnt öðrum málum. Það er eitthvað sem síðasta ríkisstjórn var ófært að gera því þau voru fyrst og fremst sammála um það að neita málum. Það var neitunarríkisstjórn. (Forseti hringir.) Þetta er ríkisstjórn sem treystir sér að spyrja þjóðina og halda líka vel á spöðunum í efnahagsmálum. (Gripið fram í.)