151. löggjafarþing — 80. fundur,  19. apr. 2021.

lagasetning um sóttvarnir.

[13:06]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir. Ég hlýt að spyrja í framhaldinu hvað ríkisstjórnin ætli að gefa sér langan tíma til að meta hvort ráðast þurfi í þessar breytingar á lögum. Er hæstv. forsætisráðherra búin að tryggja stuðning við slíka lagasetningu í stjórnarliðinu? Þó að hún segi sjálf í fjölmiðlum að það sé mikið samlyndi á því heimili veit ég ekki hvort maður á þá að sleppa því að taka mark á fjölmörgum stjórnarliðum sem segjast ekki munu styðja þetta. En Samfylkingin er tilbúin til að taka ómakið af ríkisstjórninni og við erum tilbúin með frumvarp til breytinga á sóttvarnalögum sem heimilar ráðherra að skylda fólk sem hingað kemur í dvöl í sóttvarnahúsi. Það byggir á tillögum Þórólfs. Ég spyr því: Er hæstv. forsætisráðherra tilbúin til að styðja slíkt frumvarp ef það kemur fram strax og er hún tilbúin til að hlusta áfram á sérfræðingana okkar?