Samráðsleysi dómsmálaráðherra við ríkisstjórn varðandi rafvarnarvopn.
Frú forseti. Við ræðum hér stórt mál, grundvallarmál sem varðar vopnaburð lögreglu, og hefði átt að ræða, ekki bara í ríkisstjórn heldur hér á þinginu líka. Þá mætir hæstv. forsætisráðherra með ræðu sem virðist fyrst og fremst hafa verið skrifuð til að verða tíðindalaus, að ekkert kæmi þar fram sem gæti vakið athygli eða frekari umræðu. En í þessari tíðindalausu ræðu hæstv. forsætisráðherra var ekki komið inn á eitt atriði sem mér finnst þó að við þurfum að nefna í þessu samhengi og það er jafnræði. Við höfum horft upp á það á undanförnum árum að ráðherrar, ekki síst Vinstri grænna, hafa komið með reglugerðarbreytingar án þess að ræða það nokkuð við samstarfsflokkana í ríkisstjórn, jafnvel rétt fyrir kosningar. Grundvallarbreytingum er hent í gegn í reglugerðum þegar þingið er farið frá.
Við hljótum að þurfa að setja þessa hluti alla í samhengi og gera ráð fyrir því að eitt verði yfir alla að ganga. Kannski er hikið á hæstv. forsætisráðherra, í viðbrögðum við þessu máli núna, afleiðing af því að hæstv. ráðherra veit að eigin ráðherrar hafa stundað það að ráðast í reglugerðarbreytingar sem samstarfsflokkarnir hefðu ekkert endilega verið sáttir við.
Talandi um jafnræði. Þegar þessi ríkisstjórn boðar eitthvað sem getur orkað tvímælis, sem gerist nú ekki sjaldan, þá er það að því er virðist vinnuregla að gefa hlutunum nýtt heiti til að fela innihaldið, enda ríkisstjórn sem gengur fyrst og fremst út á umbúðirnar fremur en innihaldið. En mér virðist hæstv. dómsmálaráðherra ekki fá að leika þennan leik í þessu tilviki, eftir að hann tók upp á því að skýra rafbyssur rafvarnarvopn, sem hljómar nú eins og eitthvað til að verjast rafrænum árásum. Það hefur almennt ekki verið tekið upp, jafnvel ekki meðal samherja hans í ríkisstjórninni. Kannski er það af því að nafnið er ekki alveg nógu gott, ég gæti lagt til rafvarnartæki, af því að vopn hefur á sér yfirbragð sem styggir kannski Vinstrihreyfinguna – grænt framboð, þó að þetta sé auðvitað vopn. Rafvarnarverkfæri, rafvarnarþing, rafvarnartól. Ég held að ég hefði valið rafvarnarbúnaður. Þá hefði málið kannski farið í gegn án þessarar þó litlu fyrirstöðu sem birtist okkur frá Vinstri grænum.
Við þurfum líka að hafa í huga ástæður þess að hæstv. dómsmálaráðherra sér ástæðu til að vopna lögregluna í auknum mæli, sem ég held að flestum Íslendingum þyki frekar óþægilegt og sannarlega er tilefni til að ræða það, eins og ég nefndi hér strax í upphafi. En þetta er afleiðing af miklum breytingum í samfélaginu sem hefur ekki verið brugðist við. Ég vísa til að mynda í skýrslu ríkislögreglustjóra um skipulagða glæpastarfsemi, einkum stóru skýrslurnar frá 2017 og 2019, sem þessi ríkisstjórn hefur ekki brugðist við á nokkurn hátt sem heitið getur. Glæpamannasamfélagið, svo að ég bregði nú fyrir mig vinstra tungutaki, hefur breyst mjög verulega á Íslandi á mjög skömmum tíma. Það kallar þá að mati ráðherrans, a.m.k. hæstv. dómsmálaráðherra, á þessa vopnvæðingu. En ég tel að við þurfum ekki aðeins að ræða viðbrögðin heldur líka ástæðurnar fyrir því að brugðist er við á þennan hátt.