um atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar.
Virðulegur forseti. Já, það er nú ágætt að forseti boðar hér atkvæðagreiðslu, þó seinna á þessum þingfundi. Það er hins vegar venja að hafa atkvæðagreiðsluna um leið og borin er upp ósk um að hafa lengri þingfund. Tímalengd þingfunda er ágætlega og vel og skýrt afmörkuð í þingskapalögum. Það á að heyra til undantekninga að vikið sé frá þeim reglum. Hér á þessum þingvetri hefur það verið æ oftar sem óskað hefur verið eftir lengri þingfundi án tilefnis. Vissulega get ég skilið að hæstv. ráðherrar og forseti Alþingis í samstarfi við þá séu mjög áfram um að koma málum á dagskrá og telji það mjög brýnt. Allir hæstv. ráðherrar telja sín mál mjög brýn og að það þurfi að ræða þau. Það breytir því ekki hins vegar að umræðu hér er markaður ákveðinn tími og lengd þingfunda er markaður ákveðinn tími í þingskapalögum. Hér voru tveir þingfundir í dag og á hinum fyrri var boðaður lengri þingfundur á hinum seinni. Það er heldur ekki í samræmi við þingskapalög.
Virðulegur forseti. Ég óska eftir því að þessi atkvæðagreiðsla um lengd þingfundar fari (Forseti hringir.) fram núna, enda hefur verið óskað eftir lengri þingfundi núna.