Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 86. fundur,  23. mars 2023.

staða ríkisfjármála.

[10:46]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegur forseti. Að sjálfsögðu verðum við áfram að leita leiða til að hagræða og spara, eins og hv. þingmaður segir, og ég verð fremstur í flokki ráðherra, ég lofa því, að tala fyrir auknum sparnaði. Tækifærin eru út um allt. Við höfum verið í stafvæðingunni, hún hefur sparað nú þegar, ekki bara fólkinu sem er að nýta þjónustuna sporin við að hlaupa á milli stofnana, heldur líka stjórnkerfinu verulega fjármuni. Við getum gengið miklu lengra þar. Við erum nú þegar að sýna það í verki, t.d. með sameiningu stofnana. Umhverfisráðherra er að boða umfangsmiklar breytingar á stofnanakerfinu, matvælaráðherra er sömuleiðis með slík mál í farvatninu og fleiri ráðherrar. Við erum t.d. í skrifstofuhúsnæði, til að taka bara eitt dæmi, sem er deiglan í Borgartúni, þar sem Framkvæmdasýsla ríkisins og Ríkiskaup koma núna saman við að reka skrifstofurými, þar erum við með skrifstofu þar sem hið opinbera nýtir eina hæð þar sem fyrir komast rúmlega 100 manns. Á sínum tíma var einkafyrirtæki í þessum nákvæmlega sömu fermetrum með hversu marga starfsmenn? Átta. Ég held að við séum með þessu nýjasta dæmi okkar að sýna hvernig við getum farið miklu betur með skrifstofuhúsnæði og náð aukinni hagkvæmni í rekstri ríkisins, rekið saman stoðkerfin o.s.frv. Og við ætlum að halda áfram á þessari braut.