140. löggjafarþing — 86. fundur,  20. apr. 2012.

fjölgun framhaldsskóla.

[11:00]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Hv. þingmaður spyr um stöðuna í framhaldsskólum út frá því skriflega svari sem lagt var fram í vikunni. Það er rétt að þar eru ekki nefndar þær framkvæmdir sem ekki liggur fyrir að unnt sé að fjármagna, þarna eru ýmsar framkvæmdir ekki nefndar sem þó hafa verið í umræðunni. Ég get til að mynda nefnt viðbyggingar við framhaldsskóla, ég get nefnt húsnæði sem við höfum oft rætt í þessum sal, um náttúruminjasafn, listaháskóla o.fl. þannig að þetta er engan veginn tæmandi listi yfir þær framkvæmdir sem verið hafa til umræðu.

Hvað varðar nýjan framhaldsskóla hefur það að sjálfsögðu verið rætt í þessum hverfum. Það hafa líka verið nefndar aðrar leiðir, viðbygging við Fjölbrautaskólann í Garðabæ sem stóð til að fara í á sínum tíma, svo dæmi sé tekið. Þó er unnið að því af fullum krafti og við vonumst til þess núna, þegar við horfum vonandi fram á uppbyggingarskeið í menntamálum eftir erfiðan niðurskurð síðustu ára, að fara að vinna samkvæmt nýjum lögum og nýjum námskrám sem komnar eru út. Unnið er að því með skólunum að semja nýjar námsbrautalýsingar og er sérstakur þróunarsjóður áætlaður í það. Ég á því von á því að við sjáum árangurinn af því starfi í styttri leiðum í gegnum framhaldsskólann, í ólíkum og fjölbreyttum leiðum, það kann að hafa áhrif á þá húsnæðisþörf sem hv. þingmaður vísaði til í fyrirspurn sinni.