Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ofsatrúarmenn sem lifa í blindri trú á hugmyndafræði sem er gjörsamlega andstæð heilbrigðri skynsemi eru hættulegir þjóðfélaginu, hvort sem um er að ræða hagstjórnarstefnu, stjórnmálastefnu eða trúarbrögð. Félagslega og hugmyndafræðilega er ofsatrú þeirra á eigið ágæti eða þeirra útgáfu af sannleikanum eitthvað sem á að kveikja rauð viðvörunarljós og þá ekki síst þegar þeir taka eitthvað gott og gilt af því að það er í svo ómótstæðilega góðu samræmi við það sem þeir vildu óska sér. Blint trúarofstæki þeirra, t.d. á stýrivaxtahækkanir út fyrir gröf og dauða, mun skilja útvalin heimili eftir í rjúkandi rúst vegna trúar þeirra á eigið ágæti við að ná tökum á verðbólgunni. Aðgerðir þeirra og hryðjuverkabankans eru u.þ.b. tólf sinnum verri en verðbólgan sjálf. Formúla þeirra sem er bara ein, þ.e. stýrivaxtahækkanir aftur og stýrivaxtahryðjuverkahækkanir enn og aftur, er engum til góðs nema bönkunum og ríkum auðmönnum innan þeirra.
Á sama tíma borar ríkisstjórnin í nefið og horfir alvarlegum augum í gaupnir sér og gerir ekki neitt. Á sama tíma rær fátækt fólk lífróður fyrir tilveru sinni og barna sinna. Unga fólkið, sem framdi þann glæp að trúa á lágvaxtalandið Ísland, sér fram á að missa íbúðir sínar. Fátækt hefur slæm áhrif á heilsuna, sjálfsvirðinguna og stórminnkar lífslíkur þeirra sem búa við hana að staðaldri og hokra þar í boði ríkisstjórnar hvers tíma. Þá kemur fátækt vel fram í börnum þeirra foreldra sem eru föst í sárafátækt, í félagslegri framtíð barnanna og í því að þau eiga síður möguleika á að nýta hæfileika sína til framtíðar. Félagslegur auður og að lifa við auðlegð hlýtur að gefa þekkingu og völd en fátækt fólk sem kemur ekki nálægt þessu stjórnborði — foreldrar fátækra barna horfa fram á grófa mismunun barna sinna varðandi félagslega viðurkenningu og möguleika þeirra til að nýta hæfileika sína í framtíðinni. Það er ríkisstjórnin sem rænir (Forseti hringir.) börn æsku þeirra, unglingsárunum og framtíðinni með því að hafa þau í fátækt.