Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 89. fundur,  28. mars 2023.

afhending gagna varðandi ríkisborgararétt.

[14:14]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Þetta er fáránleg umræða. Þegar ég kom inn sem nýr þingmaður í lok nóvember 2021 og hóf síðan störf í allsherjar- og menntamálanefnd sem fyrsti varaformaður hlakkaði ég til þess fyrir jól að samþykkja lög um ríkisborgararétt. Það varð ekki. Og af hverju var það? Jú, af því að hæstv. dómsmálaráðherra afhenti ekki gögn sem við þurftum á að halda til að við gætum samþykkt ríkisborgararéttinn. Ég tel að það sé mikilvægt að allir lesi þetta minnisblað. Þar segir, með leyfi forseta, í niðurstöðukaflanum:

„Til þess að Alþingi geti afgreitt umsóknir um ríkisborgararétt með viðunandi hætti þarf það að fá þau gögn sem máli skipta. Fáist þau gögn ekki afhent með þeim hætti sem Alþingi óskar eftir getur það í ljósi þess að þingið fer með forræði á málaflokknum beitt 1. mgr. 51. gr. þingskapa til að skylda stjórnvöld til að verða við beiðnum Alþingis innan tiltekins frests. Ákvæðið hefur víðtækt gildisviðs og ekki eru gerðar ríkar kröfur til þess hvernig mál sem nefnd hefur til umfjöllunar er afmarkað.“

Við fengum aldrei þessi gögn. Það er það sem var brotið. (Forseti hringir.) Þetta eru ekki bara gögn, þetta eru líka upplýsingar sem þarf að taka saman svo að við getum sinnt löggjafarstarfi okkar. Það var ekki gert.