155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

fundarstjórn forseta og fyrirspurnir til ráðherra .

[14:29]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Ég heyrði að forseti óskaði eftir umræðu um fundarstjórn forseta og mér leikur forvitni á að vita hvernig þessi tilmæli hæstv. forseta eiga að virka. Hér er talað um að þingmenn eigi ekki að ræða eða minnast á ráðherra sem ekki getur svarað fyrir sig í óundirbúnum fyrirspurnatíma. Ég var rétt í þessu að gera eitthvað svipað, talaði um sama mál og ég vísaði í orð hæstv. þáverandi fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssonar, í tengslum við þetta sama mál, fjármögnun niðurgreiðslu á heilbrigðisþjónustu, og gerði það í samhengi málsins. Ég spurði hæstv. ráðherra: Ætlar hann að gera betur en forveri sinn? Sér hann eftir því að hafa ekki ákveðið að standa við vilja löggjafans, að uppfylla lögin í landinu? Var ég þá líka að ganga gegn þessum fyrirmælum hæstv. forseta? Það væri gott að fá skýringu á því hvar línan liggur vegna þess að ég hef áhyggjur, virðulegi forseti, af þessum tilmælum forseta. Það er mikilvægt að við getum talað um forvera fólks, sögu mála og samhengi hlutanna, (Forseti hringir.) þótt viðkomandi ráðherrar geti kannski ekki mætt strax á eftir, ekki fyrr en einmitt þegar þeir mæta svo aftur til að bera af sér sakir. (Forseti hringir.) Ég held að við hljótum að þurfa að fá nánari skýringar á þessu.