fundarstjórn forseta og fyrirspurnir til ráðherra .
Forseti. Já, þetta er um fundarstjórn því að ef við förum aðeins að upprunanum í þessu þá er talað í fyrirspurninni um andstöðu þáverandi heilbrigðisráðherra í garð sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólks, sem sagt að gamlir fordómar í garð sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólks hafi leitt til þess að það hafi verið tregða til þess að fara í þetta. Þarna er verið að spyrja hæstv. fjármálaráðherra, vissulega, um ákveðnar skoðanir eða sögu annars ráðherra hvað þetta varðar og upp koma ásakanir um dylgjur. Dylgjur eru eitthvað sem varða fundarstjórn forseta í öllum þessum skemmtilegu reglubókum sem maður les þegar maður sest í þennan stól, þar er talað um brigslyrði sérstaklega. Þannig að þegar við erum að tala um ásakanir um dylgjur þá hlýtur það að varða fundarstjórn forseta.