155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

Húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs.

[15:06]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Frú forseti. Menn geta fært alveg ágætisrök fyrir því að taka húsnæðisliðinn út úr neysluverðsvísitölunni. Ég er ekki sammála því en ég skil rökin. Ég held að rökin fyrir því að hafa einmitt húsnæðisliðinn inni — svo er annað mál hvernig við mælum þær breytingar inn í vísitölunni — vegi þyngra. Hitt er annað mál eins og ég hef haldið fram og ég hef tekið undir tillögur starfshóps um framtíðarskipulag peningastjórnunar um að Seðlabanki Íslands eigi ekki að horfa til breytinga á eignamarkaði fasteigna við ákvörðun stýrivaxta. Það skiptir máli. Það skiptir máli vegna þess að Seðlabankinn hefur mjög takmörkuð tækifæri til að hafa áhrif á verðþróun á eignamarkaði íbúða, hvort heldur eftirspurn en sérstaklega framboð. En ég vara við því að menn nálgist þetta viðfangsefni um samsetningu vísitölu út frá því og gefi til kynna að með því geti hugsanlega raunvextir íbúðalána lækkað. Það er ekki svo. Ég tek undir með hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra að það er ekki á vísan að róa í þeim efnum. Raunvextir íbúðalána munu ekki lækka þó að íbúðaverð verði tekið út úr neysluverðsvísitölunni. Ég bið menn um, alla hv. þingmenn hér, að tala ekki með þeim hætti og byggja upp slíkar væntingar til þeirra sem núna eru að berjast við og þurfa að kljást við erfiða og þunga bagga vegna íbúðalána.