155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

Húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs.

[15:09]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Ein frumforsendan fyrir því að greiðslur af húsnæðislánum lækki og það verði auðveldara fyrir fólk að komast inn á fasteignamarkaðinn er að verð á fasteignum lækki. Til þess að svo megi verða þarf að vera meira framboð af fasteignum heldur en er. Í þessari umræðu hef ég heyrt í raun sama gamla sönginn af hálfu stjórnarliða, sem gengur út á það að benda á Reykjavíkurborg eða á sveitarfélögin og kenna þeim um húsnæðisverðið. Það sem ég vil segja við því er að okkur vantar tilfinnanlega leiðtoga í ríkisstjórninni, leiðtoga sem er til í að taka það á sig að segja: Við berum ábyrgð á því að leiða saman alla sem þarf að leiða saman til að takast á við neyðarástand á húsnæðismarkaði. Fyrsta skrefið er kannski bara að viðurkenna að neyðarástand sé á húsnæðismarkaði en tala ekki um sömu 2.000 íbúðirnar sem stendur til að byggja eftir einhvern ákveðinn tíma af hálfu ríkisstjórnarinnar, aftur og aftur, án þess að gera neitt annað en að benda á sveitarfélögin og segja að þetta sé allt þeim að kenna. Okkur vantar tilfinnanlega leiðtoga sem er til í að leiða saman verkalýðsfélögin, lífeyrissjóðina, sveitarfélögin og ríkisstjórnina til að fara strax í skammtímaaðgerðir við að byggja upp heilmikið húsnæði og fara beint í langtímaaðgerðir til að gera slíkt hið sama. Hér þarf ríkið að koma sterkt inn. Hér þarf ríkið að koma beint að uppbyggingu á almennu húsnæði fyrir almenning vegna þess að það er alger markaðsbrestur á Íslandi, svo ég tali nú ekki um fákeppnina á bankamarkaði sem gerir það auðvitað að verkum að lánin eru bara út í hött. Þetta er bara fáránlegt. Það lætur engin önnur þjóð bjóða sér þetta. Það lætur engin önnur ríkisstjórn bjóða sér svona framkomu við sitt fólk, en það er þannig hér. (Forseti hringir.) Okkur vantar tilfinnanlega leiðtoga til að takast á við þetta. Píratar eru tilbúnir að vera sá leiðtogi.