155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

landlæknir og lýðheilsa og sjúkraskrár.

230. mál
[15:59]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Hv. þingmaður beinir athyglinni að mjög mikilvægum hluta hagkerfisins sem er félagslega hagkerfið, ekki hið peningalega fjárlagahagkerfi sem er einhvern veginn alltof bókhaldslegt fyrir mínar þarfir. Dæmi sem ég tek um það hvernig hið félagslega hagkerfi virkar — það eru í rauninni ekki alveg beinharðir peningar til staðar, stundum en stundum ekki — er t.d. að fólk geti skilað skattskýrslum rafrænt. Það sparar fólki ómældan tíma, ekkert endilega beinharða peninga; sumir segja reyndar að tíminn sé peningar þannig að það er kannski eitthvert samasemmerki þar á milli. En þetta sparaði fólki gríðarlegan tíma og það var gríðarlega mikil framför. Þetta frumvarp gæti alveg verið álíka framför en það gæti líka falið í sér aukakröfur. Það væri einmitt gott að vera með þá greiningu til staðar, að greiningin sé nákvæmari en bara „hefur engin áhrif á fjárhagsstöðu ríkisins og eignastöðu ríkisins“. Ef engin greining var gerð í alvörunni, eins og hæstv. ráðherra sagði, það fór í gegnum nálaraugað, þá hlýtur velferðarnefnd að geta fengið þá greiningu. Hún er væntanlega ágætlega skemmtilega ítarleg, ég hlakka til að sjá hana. Já, ég fer kannski aðeins yfir hana seinna. En mér finnst þetta mjög áhugaverð nálgun á það hvernig við fjöllum um lagafrumvörp hér í þinginu og mér finnst vera þörf á því að það sé einmitt útvíkkað aðeins í þá átt sem hv. þingmaður var að tala um.