fundarstjórn forseta og fyrirspurnir til ráðherra .
Virðulegur forseti. Ég ætla nú bara að tala um fundarstjórn forseta og kannski í fyrsta lagi að það væri nú dálítið úr karakter ef ég væri að víkja mér undan pólitísku ati, ég bara kann ágætlega við það. En um leið finnst mér mikilvægt að við höldum okkur við þær aðferðir sem við viljum beita hér. Þegar ég tala um dylgjur þá snýst það um að hér sé fullyrt að það hafi verið pólitískar kreddur þeirrar sem hér stendur sem hafi staðið í vegi fyrir samningum við sjálfstætt starfandi sálfræðinga. Það er einfaldlega ekki satt og það er ekki rétt. Ég verð að segja að mér finnst það ódýrt útspil hjá formanni Viðreisnar að gera það, en það kann að vera að það þjóni hennar pólitísku markmiðum. Svo finnst mér umhugsunarefni, sama hvort það eru karlar eða konur sem tala, (Forseti hringir.) að tala sífellt um viðkvæmni og að ég sé hörundsár þegar um það er að ræða einfaldlega að við erum takast á um bæði efni og inntak.