Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 91. fundur,  30. mars 2023.

varamenn taka þingsæti.

[10:32]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hafa bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Diljá Mist Einarsdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson og Hildur Sverrisdóttir verði fjarverandi á næstunni og frá varaformanni þingflokks Samfylkingarinnar um að Logi Einarsson muni ekki geta sinnt þingstörfum á næstunni. Þá hafa borist bréf frá formanni þingflokks Pírata um að Gísli Rafn Ólafsson og Halldóra Mogensen verði fjarverandi á næstunni og frá formanni þingflokks Viðreisnar um að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Að lokum hefur borist bréf frá formanni Flokks fólksins um að Jakob Frímann Magnússon verði fjarverandi næstu daga. Í dag taka því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykv. n., Brynjar Þór Níelsson, 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðaust., Berglind Harpa Svavarsdóttir, og 4. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykv. s., Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, en varamenn ofar á lista hafa boðað forföll, 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Norðaust., Hilda Jana Gísladóttir, 1. varamaður á lista Pírata í Suðvest., Eva Sjöfn Helgadóttir, 1. varamaður á lista Pírata í Reykv. n., Lenya Rún Taha Karim, og 2. varamaður á lista Viðreisnar í Suðvest., Thomas Möller, en 1. varamaður hefur boðað forföll. Að lokum tekur sæti 1. varamaður á lista Flokks fólksins í Norðaust., Katrín Sif Atladóttir.

Brynjar Þór Níelsson, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Hilda Jana Gísladóttir, Eva Sjöfn Helgadóttir, Lenya Rún Taha Karim, Thomas Möller og Katrín Sif Árnadóttir hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru þau boðin velkomin til starfa að nýju.

Landskjörstjórn hefur gefið út tilkynningu á grundvelli 1. mgr. 113. gr. kosningalaga til Ragnhildar Öldu Maríu Vilhjálmsdóttur. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til þess að fjalla um kosningu og kjörgengi hennar.