aðgerðir til að tryggja flugsamgöngur.
Herra forseti. Við hv. þingmaður erum sammála um mikilvægi Icelandair og eins og ég nefndi áðan er það ekki bara vegna flugsamgangna, sem er þetta samfélagsöryggi sem hv. þingmaður vísar í, heldur hefur félagið verið lykilaðili í uppbyggingu ferðaþjónustu á Íslandi og hefur alla burði til þess að vera lykilaðili í því að koma viðspyrnunni af stað. Auðvitað er staðan þung hjá félaginu í ljósi þess að landamæri eru lokuð. Það er ekki verið að fljúga á milli landa, það er öllum morgunljóst. En það er hins vegar lykilatriði líka að félagið ljúki við áform sín og áætlunargerð sem snýst um að safna nýju hlutafé. Ég hef trú á að þau áform geti skilað árangri. En ég ítreka það sem ég hef áður sagt að ég útiloka ekki að ríkið muni koma að á síðari stigum.