afstaða ríkisstjórnarinnar til átakanna á Gaza.
Virðulegi forseti. Ég vil undirstrika að við eigum að taka skýra afstöðu með mannréttindum. Við eigum að taka skýra afstöðu gegn þjóðum sem hernema aðrar þjóðir og ekki síst árásum á óbreytta borgara eins og við upplifum núna í dag á milli Ísraels og Palestínu. Líf og öryggi milljóna manna veltur á því að vopnahléi verði komið á milli Ísraels og Palestínu. Við getum þrýst á að svo verði og við getum beitt okkur víða í alþjóðasamfélaginu. En við megum heldur ekki hafa það þannig að við skýlum okkur á bak við það til að vera svolítið stikkfrí frá eigin hugsjónum og hugmyndafræði. Þingflokkur Vinstri grænna fordæmdi um helgina aðgerðir Ísraels á Gaza, fordæmdi valdníðslu, margendurteknar landtökur og brottvísanir Palestínubúa frá heimilum sínum. Ég vona að þetta sé ekki eingöngu einhver syndaaflausn því að mér finnst afstaða íslensku ríkisstjórnarinnar ekki vera skýr þegar kemur að þessum málum. Það er alveg ljóst að Ísrael er í algjörri yfirburðastöðu gagnvart Palestínu, bæði hvað varðar hernaðarafl og efnahagslegan stuðning frá erlendum ríkjum. Að mínu mati getur Ísland einfaldlega ekki setið hjá þegar kemur að mannréttindabrotum, hvar sem þau eru í heiminum.
Mig langar því að spyrja hæstv. forsætisráðherra: Hver er afstaða forsætisráðherra og ríkisstjórnar hennar? Ég er ekki að spyrja hana sem formann Vinstri grænna því að þar er afstaðan greinilega önnur. Hver er hin opinbera afstaða Íslands? Opinbera afstöðu Íslands geta í rauninni bara tveir tekið, það er ríkisstjórnin og síðan Alþingi Íslendinga, eftir atvikum utanríkismálanefnd. Ég vil í öðru lagi spyrja hæstv. forsætisráðherra: Mun hún taka upp þessi málefni á fundi sínum síðar í vikunni með Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem eru jafnframt ein helsta stuðningsþjóð Ísraels? Mun hún segja Blinken að íslenska ríkisstjórnin fordæmi árásir Ísraelshers á Palestínu?