Orkusjóður.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu á þessu máli. Þarna er verið að sameina tvo mismunandi sjóði. Nú hefur það verið þannig að loftslagssjóður hefur sérstaklega einblínt á stuðning við nýsköpunarfyrirtæki og nýsköpunarverkefni og það hefur verið harðlega gagnrýnt að það fjármagn sem hefur verið sett í slíkt sé allt of lágt. Þess má geta að í síðustu úthlutun á síðasta ári voru veittar 173 milljónir. Það er svona helmingurinn af því sem eitt stefnumótaforrit frumkvöðlafyrirtækis fékk í fjármögnun, með öðrum orðum allt of lítið.
Mig langaði að spyrja hæstv. ráðherra: Við það að sameina þessa tvo sjóði, reiknar hæstv. ráðherra með því að það muni auka möguleika og styrkja nýsköpunarfyrirtækin? Munu þær upphæðir sem settar verða í nýsköpunarstuðninginn aukast með þessu eða munu þær dragast saman og fara meira yfir í það sem Orkusjóður hefur verið að gera hingað til?