Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna.

939. mál
[15:09]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Áhugaverð spurning þó að hún tengist, eins og hv. þingmaður segir, ekki endilega þessu máli. Ég svo sem kann þessi lög ekki almennilega sem hv. þingmaður er hér að fara yfir, þótt ég hafi lesið á sínum tíma ættleiðingarlögin (BLG: Sambúðarlögin.) Eflaust eru einhverjar flóknar skýringar þar á bak við eins og okkur er tamt að gera þegar við erum að setja lög. Ég vissi ekki einu sinni að það væri takmörkun á því, ef eitt systkini félli frá, að önnur systkini gætu ættleitt fimm börn, þrjú börn. (BLG: Margir foreldrar.) Já. Hv. þingmaður meinar sem sagt að öll systkinin geti ættleitt börn þess sem féll frá? Já, þetta er næstum því bara — þetta er áhugaverð nálgun. Nú hugsa ég um fjölkvænifrumvarpið sem hv. þingmaður lagði fram, verð ég að segja, þegar ég átta mig á því um hvað hann er að spyrja. Við þekkjum auðvitað lögin varðandi það að taka í fóstur eða það að ættleiða eða eitthvað slíkt. Ég veit ekki heldur hvort þetta sé endilega æskilegt eða skynsamlegt. En eins og hv. þingmaður segir: Við höfum örugglega öll skoðanir á því í þessu máli, þ.e. sem hæstv. ráðherra er hér með undir sem og annað. En fjölskyldumynstur eru flókin og ég veit ekki hvort það er börnum endilega til góða, ég hef bara ekki einu sinni hugsað það, að vera með fjögur foreldri, þ.e. í systkinahópi. En svo horfir maður á að það eru jafnvel til þrjár fjölskyldur utan um eitt barn sem vegna fjölskylduaðstæðna hefur hreyfst þannig til í lífinu. Þannig að þetta er bara orðið mjög flókið fyrirkomulag.