uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni, sem er nú fjölkunnugur á þessu sviði, fyrir andsvarið. Ég veit að við deilum þeirri skoðun að við hljótum að fagna því að nú sé verið að leggja á varaflugvallargjald aftur því að í þessum breytingum var það til að mynda eitt af því sem var fellt niður. Sagan hefur svolítið verið sögð í skýrslum sem hv. þingmaður hefur staðið fyrir og veitt forsvar og þar er reyndar rökstuðningur fyrir því að fara þessa leið einnig. Ég vil bara þakka hv. þingmanni fyrir alla þá vinnu og þann stuðning í þessu máli. Ég held að það hafi verið mistök og ýmsir sem voru í þessum geira bentu á að það að fella gjaldið niður 2010 myndi verða til þess að kerfið yrði undirfjármagnað seinna meir. Ef við lítum síðan til baka og skoðum hvernig gengið hefur þá erum við núna að gera fimm ára samninga, þeir hafa gengið ágætlega. En okkur hefur raunverulega skort fé til þess að byggja upp varaflugvellina sem eru auðvitað hluti af millilandafluginu, höfum verið að nota það úr innanlandsfluginu, sem er galli, þannig að ég held að hér séum við loksins komin með tæki sem við misstum 2010.