tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna.
Herra forseti. Ég þakka fyrir svar hæstv. ráðherra. Þetta er ekki efnisleg athugasemd heldur er þetta bara athugasemd við framsetningu á efninu. Ég geri engar athugasemdir við efni frumvarpsins á þessu stigi en það er rétt að auðvitað eigum við sem erum eldri og kannski að verða úreltir að taka tillit til nýrra sjónarmiða. En það má líka vera á hinn veginn, hæstv. ráðherra. Það má líka verið á hinn veginn þannig að við séum ekki að stuða hér fólk með einhverri orðanotkun sem þarf bara að staldra við. Allt í einu eru konur orðnar leghafar og það mætti einfaldlega fara bil beggja og tala um konur og síðan trans leghafa. Þannig að ég bið hæstv. ráðherra um að skoða þessa athugasemd sem er lögð hér fram með jákvæðum hætti þannig að allir geti unað við sitt og lesið glaðir í gegnum lögin án þess að stuðast af einhverjum orðum sem menn þurfa að átta sig á hvað raunverulega þýða.