uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð.
Virðulegur forseti. Ég biðst afsökunar, þetta verður líka meðsvar en ekki andsvar. En ég ætla bara að þakka hv. þingmanni fyrir hans áhuga og elju við að berjast fyrir þessum hlutum. Ég hef allan minn feril í þessum samgöngumálum og flugmálunum, frá því að ég kom inn í ráðuneytið 2017, í raun og veru verið að vinna í þessa átt, að tryggja það að við myndum reka þetta kerfi okkar einhvern veginn saman, gætum byggt upp varaflugvellina sem eðlilegan hluta af heildarflugvallakerfinu í landinu. Við getum ekki verið að byggja upp Keflavíkurflugvöll og verið að stækka hann alltaf ef við erum ekki með varaflugvellina með, hvort sem er bara út af lágmarksöryggisþjónustu en líka út af þeirri þjónustu sem við höfum nefnt hérna og loftslagsmálum et cetera. Þannig að ég held að hér séum við að taka mjög stórt skref og ég veit að ég get treyst á stuðning þingmannsins og vonandi þingheims alls í að klára þetta hratt og vel.