16.7.2025

Aðalmenn taka sæti

Eyjólfur Ármannsson tók sæti á ný á Alþingi mánudaginn 14. júlí. Vék þá varaþingmaður hans, Bragi Þór Thoroddsen, af þingi.

Jón Gunnarsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Alma D. Möller, Ingvar Þóroddsson, Halla Hrund Logadóttir, Ingibjörg Isaksen, Ragna Sigurðardóttir og Snorri Másson tóku sæti á ný á Alþingi þriðjudaginn 15. júlí. Viku þá varaþingmenn þeirra, Árni Helgason, Birna Bragadóttir, Hildur Rós Guðbjargardóttir, Heiða Ingimarsdóttir, Jóhann Friðrik Friðriksson, Jónína Brynjólfsdóttir, Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir og Þorsteinn B Sæmundsson af þingi.