Varamenn taka sæti
Elín Íris Fanndal tekur sæti á Alþingi mánudaginn 26. janúar sem varamaður fyrir Sigurð Helga Pálmason. Rúnar Sigurjónsson tekur sæti sama dag fyrir Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur, Katrín Sif Árnadóttir tekur sæti fyrir Sigurjón Þórðarson, Hákon Hermannsson tekur sæti fyrir Ingibjörgu Davíðsdóttur, Eiríkur S. Svavarsson fyrir Bergþór Ólason og Ingveldur Anna Sigurðardóttir fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur.