65. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn miðvikudaginn 28. apríl 2021
kl. 14:40
Mætt:
Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 14:40Jón Steindór Valdimarsson (JSV) 1. varaformaður, kl. 14:40
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 14:40
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 14:40
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 14:40
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB) fyrir Oddnýju G. Harðardóttur (OH), kl. 15:20
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 14:40
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 14:40
Smári McCarthy var fjarverandi.
Nefndarritarar:
Arnar Kári Axelsson
Steindór Dan Jensen
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 13:40
Dagskrárlið frestað.
2) 698. mál - breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru Kl. 14:40
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Baldur Sigmundsson og Gunnar Val Sveinsson frá Samtökum ferðaþjónustunnar og Ólaf Stephensen frá Félagi atvinnurekenda.
3) 605. mál - brottfall laga um vísitölu byggingarkostnaðar Kl. 15:00
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til annarrar umræðu.
Allir viðstaddir nefndarmenn rituðu undir nefndarálit með breytingartillögu.
4) 642. mál - fjármálafyrirtæki Kl. 15:00
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til annarrar umræðu.
Allir viðstaddir nefndarmenn rituðu undir nefndarálit með breytingartillögu.
5) 583. mál - greiðsluþjónusta Kl. 15:05
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Jónu Björk Guðnadóttur, Hallgrím Ásgeirsson og Leif Arnkel Skarphéðinsson frá Samtökum fjármálafyrirtækja.
6) 591. mál - breyting á embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins Kl. 15:40
Nefndin staðfesti umsagnarbeiðnir samkvæmt heimild í fundargerð 47. fundar með fresti til 13. maí og ákvað að Rósa Björk Brynjólfsdóttir yrði framsögumaður þess.
7) Önnur mál Kl. 15:40
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 15:40