8. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 155. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, mánudaginn 4. nóvember 2024
kl. 09:15
Mætt:
Diljá Mist Einarsdóttir (DME) formaður, kl. 09:15Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG) 1. varaformaður, kl. 09:15
Gísli Rafn Ólafsson (GRÓ) 2. varaformaður, kl. 09:15
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 09:15
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK) fyrir (ÁLÞ), kl. 09:15
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 09:15
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:15
Orri Páll Jóhannsson (OPJ) fyrir Steinunni Þóru Árnadóttur (SÞÁ), kl. 09:15
Sigþrúður Ármann (SigÁ) fyrir Birgi Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:15
Ágúst Bjarni Garðarsson tók þátt í fundinum gegnum fjarfundarbúnað.
Nefndarritarar:
Ívar Már Ottason
Þuríður Benediktsdóttir
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:15
Frestað.
2) 35. mál - hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum Kl. 09:15
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Arnar Kára Axelsson og Sigurð Pál Ólafsson frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með tveggja daga umsagnafresti.
3) 2. mál - breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025 Kl. 09:26
Nefndin fjallað um málið og fékk á sinn fund Drífu Hjartardóttur frá Kirkjuþingi og Birgi Gunnarsson frá Þjóðkirkjunni.
4) 300. mál - skattar og gjöld Kl. 09:40
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Þorbjörgu Sæmundsdóttir og Sæmundur Hermansson frá CCP, Sigurð Arnljótsson, Pétur Richter og Lailu Sæunni Pétursdóttur frá Framvís og Hlyn Ólafsson og Guðmund Fertram Sigurjónsson frá Kerecis.
Þá komu á fund nefndarinnar Hallgrímur A. Ingvarsson frá SH Import, Bjarni Freyr Guðmundsson frá Dufland og Kristján Ragnar Kristjánsson frá Svens.
Loks komu Ólafur Stephensen og Birta Sif Arnardóttir frá Félagi atvinnurekenda, Gunnlaug Briem frá Ölgerðinni, Benedikt S. Benediktsson og Kristinn Már Reynisson frá Samtökum verslunar og þjónustu og María Jóna Magnúsdóttir frá Bílgreinasambandinu.
5) 301. mál - kílómetragjald á ökutæki Kl. 10:48
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Ólaf Stephensen og Birtu Sif Arnardóttur frá Félagi atvinnurekenda, Gunnlaug Briem frá Ölgerðinni, Benedikt S. Benediktsson og Kristinn Má Reynisson frá Samtökum verslunar og þjónust og Maríu Jónu Magnúsdóttur frá Bílgreinasambandinu.
6) 298. mál - stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga Kl. 11:19
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Árna Þór Sigurðsson og Gunnar Einarsson frá Framkvæmdarnefnd um málefni Grindavíkur og Guðjón Bragason, Fannar Jónasson og Sigurð A. Kristmundsson frá Grindavíkurbæ.
7) Önnur mál Kl. 11:40
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 11:41