38. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í færeyska herberginu, fimmtudaginn 19. desember 2013 kl. 13:57


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 13:57
Pétur H. Blöndal (PHB) 1. varaformaður, kl. 13:57
Árni Páll Árnason (ÁPÁ), kl. 13:57
Brynjar Níelsson (BN) fyrir VilB, kl. 13:57
Guðmundur Steingrímsson (GStein), kl. 13:57
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 13:57
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (RR), kl. 13:57
Sigurður Páll Jónsson (SPJ) fyrir WÞÞ, kl. 13:57
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 13:57

JÞÓ var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Benedikt S. Benediktsson
Gautur Sturluson

Bókað:

1) Fundargerðir Kl. 13:57
Umfjöllun um dagskrárliðinn var frestað til næsta fundar.

2) 205. mál - tollalög o.fl. Kl. 15:03
Fyrir fundinn voru lögð drög að nefndaráliti um málið. Lögð var fram tillaga um að nefndin afgreiddi málið á grundvelli álitsdraganna. Tillagan var samþykkt samhljóða.

3) 3. mál - ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014 Kl. 14:50
Fyrir fundinn voru lögð drög að nefndaráliti um málið. Lögð var fram tillaga um að nefndin afgreiddi málið á grundvelli álitsdraganna. Tillagan var samþykkt með atkvæðum FSigurj, PHB, SPJ, LínS, RR og BN.

4) 2. mál - tekjuaðgerðir fjárlagafrumvarps 2014 Kl. 13:57
Á fund nefndarinnar kom Guðrún Þorleifsdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Guðrún kynnti nefndinni hugmynd um breytingu á málinu og svaraði spurningum nefndarmanna.

5) Önnur mál Kl. 15:16
Fleira var ekki gert á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 15:16