52. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 28. mars 2019 kl. 09:15


Mættir:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:15
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV) 1. varaformaður, kl. 09:15
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 09:15
Ásgerður K. Gylfadóttir (ÁsgG), kl. 09:15
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:30
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:15
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 09:30

Oddný G. Harðardóttir og Smári McCarthy voru fjarverandi.

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:15
Fundargerð 51. fundar var samþykkt.

2) 635. mál - tekjuskattur Kl. 09:15
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Heiðrúnu Björk Gísladóttur frá Samtökum atvinnulífsins.

3) 638. mál - bindandi álit í skattamálum Kl. 09:15
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Heiðrúnu Björk Gísladóttur frá Samtökum atvinnulífsins.

4) 633. mál - aukatekjur ríkissjóðs Kl. 09:15
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Heiðrúnu Björk Gísladóttur frá Samtökum atvinnulífsins og Yngva Örn Kristinsson og Ara Teitsson frá Samtökum fjármálafyrirtækja.

5) 637. mál - innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta Kl. 09:40
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Yngva Örn Kristinsson og Ara Teitsson frá Samtökum fjármálafyrirtækja.

6) Önnur mál Kl. 10:10
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:10