56. fundur
fjárlaganefnd á 157. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, föstudaginn 29. maí 2026 kl. 13:10


Mætt:

Sigurjón Þórðarson (SigurjÞ) formaður, kl. 13:10
Stefán Vagn Stefánsson (SVS) 2. varaformaður, kl. 13:10
Arna Lára Jónsdóttir (ArnaJ), kl. 13:10
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ), kl. 13:10
Ingvar Þóroddsson (IngÞ), kl. 13:52
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 13:10

Guðlaugur Þór Þórðarson vék af fundi kl. 15:00.
Dagur B. Eggertsson fjarverandi. Grímur Grímsson fjarverandi. Njáll Trausti Friðbertsson fjarverandi.

Nefndarritari: Jón Magnússon
Nefndarritari: Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:10

2) 577. mál - fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031 Kl. 13:11

Til fundarins komu Rannveig Einarsdóttir, Þorsteinn Gunnarson og Hörður Hilmarsson frá Reykjavíkurborg.

Kl. 13:48: Gylfi Ólafsson , Aðalsteinn Óskarsson og Sigríður Ó. Kristjánsdóttir frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga og Vestfjarðastofu. Aðalsteinn og Sigríður tóku þátt í fundinum með fjarfundabúnaði. 

Kl. 14:15. Róbert Farestveit frá ASÍ.

Kl. 14:49.  Ingvar Freyr Ingvarsson frá BHM.

Kl. 15:16. Jóhannes Þór Skúlason og  Diljá Matthíasardóttir frá Samtökum ferðaþjónustunnar. 

Kl. 16:11. Páll Brynjarsson frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi.

Kl. 16:45. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra. Hún tók þátt í fundinum með fjarfundabúnaði. 

Gestirnir fóru yfir umsagnir sínar og svöruðu jafnfram spurningum nefndarmanna. 

 


3) Önnur mál Kl. 17:16

Nefndin samþykkti með vísan til 51. gr. að óska eftir gögnum frá Samtökum ferðaþjónustunnar um þróun meðallauna og framleiðni í ferðaþjónustunni. 




Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 17:17