9. fundur
fjárlaganefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn föstudaginn 23. október 2020 kl. 09:00


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:00
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:00
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 09:00
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 09:00
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:00
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:00
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 09:00
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) fyrir Pál Magnússon (PállM), kl. 09:00
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:00

Haraldur Benediktsson vék af fundi kl. 10.08. Páll Magnússon kom á fundinn kl. 11:23 og tók þá Njáll Trausti Friðbertsson sæti Haraldar Benediktssonar. Steinunn Þóra Árnadóttir vék af fundi kl. 11:40.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 1. október sl.

Bókað:

1) 1. mál - fjárlög 2021 Kl. 09:00
Til fundarins komu Heiðrún Lind Marteinsdóttir, Kristján Þórarinsson og Heiðmar Guðmundsson frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.
Kl. 10:08. Sonja Ýr Þorbergsdóttir og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir frá BSRB.
Kl. 11:00. Erling Jóhannesson og Birna Hafstein frá Bandalagi íslenskra listamanna. Gestirnir kynntu umsögn sína um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2021 og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni hennar.

2) 2. mál - fjármálaáætlun 2021--2025 Kl. 09:00
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, Kristján Þórarinsson og Heiðmar Guðmundsson frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.
Kl. 10:00.Sonja Ýr Þorbergsdóttir og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir frá BSRB.
Kl. 11:00. Erling Jóhannesson og Birna Hafstein frá Bandalagi íslenskra listamanna. Gestirnir kynntu umsögn sína um þingsályktunina og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni hennar.

3) Önnur mál Kl. 12:05
Nefndin ræddi um þá vinnu sem framundan er. Fleira var ekki gert.

4) Fundargerð Kl. 12:30
Fundargerð 7. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 12:31