51. fundur
fjárlaganefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 28. apríl 2023
kl. 13:05
Mætt:
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) formaður, kl. 13:05Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 13:05
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 13:06
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 13:06
Inga Sæland (IngS) fyrir (EÁ), kl. 13:06
Jóhann Páll Jóhannsson (JPJ), kl. 13:06
Stefán Vagn Stefánsson (SVS), kl. 13:06
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 13:14
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 13:06
Þórarinn Ingi Pétursson vék af fundi kl. 14:40.
Nefndarritarar:
Ólafur Elfar Sigurðsson
Bókað:
1) 894. mál - fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028 Kl. 13:05
Til fundarins kom Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra. Með henni komu Kári Gautason, Anna María Urbancic og Magnús Óskar Hafsteinsson frá matvælaráðuneytinu.
kl. 14:27. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra. Með honum komu Ingilín Kristmundsdóttir, Ólafur Hjörleifsson, Hólmfríður Bjarnadóttir, Aðalsteinn Þorsteinsson og Ingveldur Sæmundsdóttir frá innviðaráðuneytinu.
Kl. 15:49 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Með henni komu Ásdís Halla Bragadóttir, Ari Sigurðsson, Þórarinn V. Sólmundarson, Ásgeir Runólfsson og Hildur Kristjánsdóttir frá háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu. Ráðherrarnir fóru yfir þá þætti áætlunarinnar sem eru á ábyrgðarsviði ráðuneyta þeirra og svöruðu spurningum nefndarmanna um þau mál.
2) Önnur mál Kl. 16:49
Rætt var um fyrirspurnir sem nefndin mun senda ráðuneytunum. Fleira var ekki gert.
3) Fundargerð Kl. 16:53
Fundargerð 50. fundar var samþykkt.
Fundi slitið kl. 16:54