55. fundur
fjárlaganefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 8. maí 2023
kl. 09:30
Mætt:
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) formaður, kl. 09:30Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) 1. varaformaður, kl. 09:30
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:30
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:30
Helgi Héðinsson (HHéð), kl. 09:30
Jóhann Páll Jóhannsson (JPJ), kl. 09:30
Sigurjón Þórðarson (SigurjÞ), kl. 09:30
Stefán Vagn Stefánsson (SVS), kl. 09:42
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 10:47
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 09:30
Helgi Héðinsson vék af fundi kl. 10:04. Björn Leví Gunnarsson vék af fundi kl. 10:54 til að fara á annan fund á vegum Alþingis. Sigurjón Þórðarson vék af fundi kl. 11:13.
Nefndarritarar:
Ólafur Elfar Sigurðsson
Bókað:
1) 894. mál - fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028 Kl. 09:30
Til fundarins kom Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. Með honum komu Runólfur Birgir Leifsson, Dagný Brynjólfsdóttir, Linda Garðarsdóttir og Heiða Lind Baldvinsdóttir frá heilbrigðisráðuneytinu. Ráðherra kynnti þann hluta áætlunarinnar sem er á ábyrgðarsviði ráðuneytisins og svaraði spurningum nefndarmanna um efni hennar.
Samþykkt var skv. 1. mgr. 24. gr. starfsreglna fastanefnda
Alþingis, sbr. 51. gr. þingskapa að óska eftir minnisblaði frá ráðuneytinu um útfærslu á mælikvörðum í áætluninni o.fl.
2) Önnur mál Kl. 11:28
Fleira var ekki gert.
3) Fundargerð Kl. 11:29
Fundargerð 54. fundar var samþykkt.
Fundi slitið kl. 11:30