62. fundur
fjárlaganefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 24. maí 2023 kl. 09:07


Mætt:

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) formaður, kl. 09:07
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) 1. varaformaður, kl. 09:07
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:07
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:16
Inga Sæland (IngS) fyrir (EÁ), kl. 09:07
Jóhann Páll Jóhannsson (JPJ), kl. 09:33
Stefán Vagn Stefánsson (SVS), kl. 09:20
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:07

Vilhjálmur Árnason var fjarverandi vegna veikinda barna.

Nefndarritari: Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 894. mál - fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028 Kl. 09:07
Til fundarins komu Helga Jónsdóttir, Guðrún Ögmundsdóttir, Hrafn Hlynsson, Andri Kristinsson, Ólafur Heiðar Helgason, Þórdís Steinsdóttir, Guðmundur Axel Hansen, Sólrún Halldóra Þrastardóttir, Högni Haraldsson, Katrín Anna Guðmundsdóttir, Jón Viðar Pálmason, Hlynur Hreinsson og Marta Skúladóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þau kynntu skatta-, eigna og fjármálaumsýslukafla fjármálaáætlunarinnar sem og stafræna þróun og umbætur í ríkisrekstrinum og svöruðu spurningum þessi mál.

2) Önnur mál Kl. 10:22
Rætt var um skipan fulltrúa fjárlaganefndar í stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra og Samstarfsnefndar um opinberar framkvæmdir. Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 10:29
Fundargerð 61. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 10:30