63. fundur
fjárlaganefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 31. maí 2023
kl. 09:09
Mætt:
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) formaður, kl. 09:09Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) 1. varaformaður, kl. 09:09
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:09
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:09
Sigurjón Þórðarson (SigurjÞ), kl. 09:09
Stefán Vagn Stefánsson (SVS), kl. 09:09
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:09
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:09
Jóhann Páll Jóhannsson var fjarverandi.
Nefndarritarar:
Ólafur Elfar Sigurðsson
Bókað:
1) 894. mál - fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028 Kl. 09:09
Til fundarins komu Sigurður Tómas Magnússon og Kristín Haraldsdóttir frá Dómstólasýslunni. Þau kynntu tillögur og áherslur um fjármögnun málefnasviðs dómstóla og mikilvægi þeirra verkefna sem unnið verður að á næstu árum fyrir dómstólana og samfélagið í heild sinni.
2) Önnur mál Kl. 09:58
Fleira var ekki gert.
3) Fundargerð Kl. 09:59
Fundargerð 62. fundar var samþykkt.
Fundi slitið kl. 10:00