6. fundur
fjárlaganefndar á 156. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, miðvikudaginn 12. mars 2025 kl. 09:10


Mætt:

Ragnar Þór Ingólfsson (RÞI) formaður, kl. 09:10
Dagur B. Eggertsson (DBE) 1. varaformaður, kl. 09:10
Stefán Vagn Stefánsson (SVS) 2. varaformaður, kl. 09:10
Arna Lára Jónsdóttir (ArnaJ), kl. 09:10
Eiríkur Björn Björgvinsson (EBB), kl. 09:10
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ), kl. 09:10
Ingvar Þóroddsson (IngÞ), kl. 09:10
Sigurður Örn Hilmarsson (SÖH) fyrir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur (ÁslS), kl. 11:11
Þorgrímur Sigmundsson (ÞorgS), kl. 09:10

Nefndarritarar:
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) Fjármálastefna - fjármálaáætlun undirbúningur Kl. 09:10
Til fundarins komu Gunnar Haraldsson, Arna Ólafsson og Þórunn Helgadóttir frá fjármálaráði. Þau kynntu starfsemi ráðsins og svöruðu spurningum nefndarmanna. Arna tók þátt í fundinum með fjarfundabúnaði.
Kl: 10:00. Óttar Snædal Þorsteinsson, Ólafur Heiðar Helguson, Elfar Hrafn Árnason, Jón Viðar Pálmason, Hilda Hrund Cortez, Hrefna Rós Matthíasdóttir og Hlynur Hreinsson frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þau kynntu umgjörð laga um opinber fjármál, stöðugleikareglu og skýrslu um langtímahorfur.

2) 5. mál - staðfesting ríkisreiknings 2023 Kl. 11:00
Samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum að afgreiða málið til 2. umræðu. Þeir eru RÞI, DBE, ArnaJ, EBB, IngÞ, SVS, SÖH GÞÞ og ÞorgS. Allir viðstaddir standa að nefndaráliti um málið.

3) Skýrsla Ríkisendurskoðunar: Fjársýsla ríkisins; starfshættir, skipulag og árangur Kl. 11:12
Afgreiðslu málsins var frestað.

4) Önnur mál Kl. 11:13
Fleira var ekki gert.

5) Fundargerð Kl. 11:14
Fundargerð 5. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 11:15