11. fundur
fjárlaganefndar á 157. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, miðvikudaginn 22. október 2025
kl. 09:00
Mætt:
Ragnar Þór Ingólfsson (RÞI) formaður, kl. 09:00Dagur B. Eggertsson (DBE) 1. varaformaður, kl. 09:00
Stefán Vagn Stefánsson (SVS) 2. varaformaður, kl. 09:00
Arna Lára Jónsdóttir (ArnaJ), kl. 09:00
Eiríkur Björn Björgvinsson (EBB), kl. 09:00
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ), kl. 09:13
Ingvar Þóroddsson (IngÞ), kl. 09:00
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:00
Þorgrímur Sigmundsson (ÞorgS), kl. 09:00
Nefndarritarar:
Ólafur Elfar Sigurðsson
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 10. fundar var samþykkt.
2) 1. mál - fjárlög 2026 Kl. 09:05
Til fundarins komu Anna Hrefna Ingimundardóttir og Arnar Birkir Dansson frá Samtökum avinnulífsins.
Kl. 10:01. Róbert Farestveit frá Alþýðusambandi Íslands.
Kl. 10:45. Svava Arnardóttir og Grímur Atlason frá Geðhjálp.
Gestirnir kynntu umsagnir samtaka sinna og svöruðu spurningum nefndarmanna úr efni þeirra.
Samþykkt var skv. 1. mgr. 24. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis, sbr. 51. gr. þingskapa að óska eftir minnisblöðum frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, félags- og húsnæðismálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti, mennta- og barnamálaráðuneyti, dómsmálaráðuneyti, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti, atvinnuvegaráðuneyti, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og innviðaráðuneyti.
3) Önnur mál Kl. 11:13
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 11:14