25. fundur
fjárlaganefndar á 157. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, mánudaginn 15. desember 2025
kl. 08:39
Mætt:
Ragnar Þór Ingólfsson (RÞI) formaður, kl. 08:39Dagur B. Eggertsson (DBE) 1. varaformaður, kl. 08:39
Stefán Vagn Stefánsson (SVS) 2. varaformaður, kl. 08:39
Arna Lára Jónsdóttir (ArnaJ), kl. 08:39
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ), kl. 08:39
Ingvar Þóroddsson (IngÞ), kl. 08:39
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 08:39
Sigmar Guðmundsson (SGuðm) fyrir Eirík Björn Björgvinsson (EBB), kl. 08:39
Njáll Trausti Friðbertsson var fjarverandi.
Nefndarritarar:
Ólafur Elfar Sigurðsson
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 08:39
Fundargerð 24. fundar var afgreidd.
2) 1. mál - fjárlög 2026 Kl. 08:40
Lagt var fram nefndarálit meiri hluta fjárlaganefndar ásamt breytingartillögum.
Til fundarins komu Jón Viðar Pálmason, Helga Jónsdóttir, Hilda Hrund Cortez og Kristinn Bjarnason frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þau fóru yfir efni bréfs ráðuneytisins dags. 12. desember 2025, endurmat áætlunar fyrir tekjur ríkissjóðs við 3. umræðu fjárlaga og tengd yfirlit. Síðan svöruðu þau spurningum nefndarmanna.
Frumvarpið var afgreitt til þriðju umræðu. Að afgreiðslunni standa Ragnar Þór Ingólfsson, Dagur Bergþóruson Eggertsson, Arna Lára Jónsdóttir, Sigmar Guðmundsson og Ingvar Þóroddsson. Minni hlutinn sat hjá við afgreiðsluna. Að nefndaráliti og breytingartillögum standa Ragnar Þór Ingólfsson, Dagur Bergþóruson Eggertsson, Arna Lára Jónsdóttir, Eiríkur Björn Björgvinsson og Ingvar Þóroddsson. Eiríkur Björn Björgvinsson ritar undir nefndarálitið og breytingartillögur samkvæmt heimild í 4. mgr. 28. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis sbr. 2 mgr. 29. gr. laga nr. 55/1991 um þingsköp Alþingis. Minni hlutinn mun leggja fram nefndarálit minni hluta. Að minni hlutanum standa Guðlaugur Þór Þórðarson, Stefán Vagn Stefánsson, Karl Gauti Hjaltason og Njáll Trausti Friðbertsson. Njáll var fjarverandi við afgreiðslu málsins en mun rita undir nefndarálit minni hluta með vísan til sömu heimilda og að framan getur.
3) Önnur mál Kl. 09:28
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 09:29